Nei komiði sæl og blessuð

ákvað að skella inn svo sem einu bloggi þar sem maður er nánast grátbeðinn nánast daglega um að skrifa nokkur orð hérna af dyggum aðdáenda hehe
Enn hvað er búið að ske á þessu rétt rúmlega ári frá síðast bloggi? Ég er ekki lengur að vinna hjá ISS að dansa um gólfin og skilmast með moppur heldur er ég að vinna hjá Steypusögun Norðurlands við að drulla mig og allt í kringum mig út hehehehe og er að fýla þessa vinnu í tættlur og ekki er það verra að ég er að vinna með einum af vinum minum þannig að jamm bara sáttur með þessa vinnu og sérstaklega ekki lengur að vinna á næturnar sem er bara gott mál, var kominn með nóg af því
Svo er ég kominn með yndislega kærustu sem heitir Linda, algjört æði þessi stelpa sem hefur nákvæmlega sama aulahúmor og ég og ekki er það verra að hún er svooo gullfalleg þannig hvað meira getur maður beðið um ? Elska þig dúllan mín :*
Hmm hvað fleira...... svo auðvitað bara þetta venjulega sem maður gerir dag frá degi : djamm, djúsað, sofa, vinna, chilla samt ekki allt á hverjum degi hehe

Svo er maður víst búinn að splæsa á sig vinnubíl og fyrir valinu var gamall Búbbarú (Subaru ef þið talið ekki bílamál

) svo notar maður bara Toyotuna um helgar og leyfi dúlluni minni að nota hana á daginn þegar hún vill

Enn ættla að fara að gera eitthvað núna þar sem ég er búinn að gera það sem ég var búinn að lofa núna þannig að ég kveð ykkur í bili og það er aldrei að vita að maður skelli inn svo sem einu bloggi seinna annars er það bara 1 árs bíð eins og núna hehe
Enn það má ekki gleyma lagi dagsins í kexruglaða kollinum á mér enn það er með
DANSKRI hljómsveit sem heitir
Saybia með lagið
The Day After Tomorrow
Adios
-Almar